Eyjaferðin 2024
- Listó
- Oct 17, 2024
- 1 min read
Helgina 30-31 ágúst fór Listónefnd ásamt ferska leikhópnum sínum til Vestmannaeyja. Farið var m.a. í sund, út að borða, bakarí og auðvitað að spranga um miðja nótt. Það var eins og var hellt úr fötu það var svo mikil rigning en það stoppaði engan og gerði ferðina bara frekar kósý. Þetta var gott og laggott hópefli til að hrista hópinn saman og setti standardinn fyrir æfingar sem svo hófust stuttu eftir.
Comments